per silentium ad as†ra mille - laiks dzejai [entries|archive|friends|userinfo]
باب

[ userinfo | sc userinfo ]
[ archive | journal archive ]

laiks dzejai [Jul. 14th, 2014|01:42 pm]
Previous Entry Add to Memories Tell A Friend Next Entry
Augnablik

Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa þessu, en einu sinni stóð ég við
bar í gallapilsinu mínu (og það sneri rétt) á meðan söngkonan
í Pretenders keypti sér drykk, en ég fékk mér Guinness og wiský
og lét sem ég sæi hana ekki, og svo hitti ég Íra sem átti dóp og
við dópuðum og svo á meðan blökkumaðurinn í Elvis-búningnum
spilaði sinn blús þá var ég komin með höndina ofan í buxurnar
hjá Íranum og svo sagði hinn blakki Elvis: “Dömur mínar og herrar,
bjóðum velkominn, vin okkar . . . Eric Clapton!”

Og Eric kom og spilaði á gítarinn og ég stóð þarna fyrir
framan hann í öfugu gallapilsi með djont í vinstri og írskan
tittling í hægri fyrir aftan bak og við… horfðumst í augu.
LinkLeave a comment